|
Könnun
Á að mæta á Sandaragleðina?
Auðvitað!
2 atkvæði
Kannski
0 atkvæði
Neibbs
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 3
|
05.09.2008 23:31:58 / sifsig
Halló!
Þá er ég loksins búin að setja inn nokkrar myndir frá Sandaragleðinni og sumrinu, ekki seinna vænna! Albúmin heita "Sandaragleði'08", "Nýkomin úr einangrun", "Örfáar sumarmyndir!" og "Fóa og Krummi". Svo á ég eftir að setja inn myndirnar úr Adrenalíngarðinum, geri það vonandi fljótlega.
Annars er nú bara mest lítið að frétta. Var í Retsmedicinprófi síðast liðinn laugardag og var það nú barasta seinasta prófið mitt í þetta sinn Eftir prófið fórum við Svala, Halldóra, Sveinbjörn og Bjarki Hrafn (litlinn þeirra H&S) á kaffihús og fengum okkar að borða. Svo var okkur boðið í smá siglingu með honum Daníel sem er á öðru ári. Við Daníel, Svala og Svenni hoppuðum í hafið nokkrum sinnum og var það nú aldeilis frískandi. Svo um kvöldið var grillað á Sofiegården, voða kósý! Þetta var alveg afbragðs huggó dagur
Ég byrjaði svo á smádýraspítalanum á mánudaginn og var þetta frekar strembin vika, tók smá tíma að rifja upp þetta blessaða tölvukerfi hjá þeim og bara að komast aftur í gírinn! En það er sem sagt spítaladvöl framundan hjá mér næstu 5 mánuðina, jibbí kleina, og að því loknu verð ég vonandi bara orðinn DÝRALÆKNIR, ji dúdda mía hljómar smá skræmmende!
Verið þið bless og ávallt hress!
»
19.08.2008 13:18:15 / sifsig
Góðan daginn kæru hálsar.
Nú fer að líða að því að ég fari aftur til Danmerkur (næsta sunnudag), er sem sagt næstum því komin og farin af Fróni, jebbs svona líka öflugur bloggari
En ég er búin að vera á Keldum aftur í sumar, núna á sýkladeildinni og í blóðtökunum og svo hef ég nú fengið að slæpast í kringum meinafræðinginn líka.
Fóa er löngu komin úr einangrun. Ég sótti hana 3. júlí og var voða ánægð að sjá hana. Henni líður bara voða vel á Íslandinu og hún og Krummi er orðin bestu vinir. Ég er búin að vera dugleg að fara með hana vestur á Hellissand um helgar til að venja hana við Helluhólinn og er hún bara orðin ansi heimakær þar á bæ, enda ekki við öðru að búast þar sem mamma og pabbi eru rosalega góð við hana. Ég á nú eftir að sakna litlu sveskjunnar í vetur.
En annars er nú bara mest lítið að frétta hjá mér, geri ekkert annað en að vinna sofa éta! Er nú að spá í að setja inn nokkrar myndir frá Sandaragleðinni og af henni Fóa minni bráðlega (sem þýðir eftir svona mánuð, hehehe).
Bless í bili, kveðja Sif ofurbloggari.
»
18.06.2008 18:08:30 / sifsig
»
15.06.2008 19:30:49 / sifsig
Sælt veri fólkið!
Eins og þið getið kannski séð á fyrirsögninni þá er specialinu loksins lokið. Við Halldóra vörðum það í sitt hvoru lagi seinast liðinn föstudag (já föstudaginn 13!), Halldóra klukkan 11 um morguninn og ég svo klukkan 14. Þetta gekk barasta nokkuð vel hjá okkur báðum og fengum við fínustu einkunn fyrir, þannig að nú erum við sáttar og sælar með okkur.
Ég er sko búin að vera að deyja úr stressi fyrir þessa blessuðu vörn og hélt ég myndi detta niður dauð í miðri vikunni. Á miðvikudaginn var ég að basla við að klára að gera fyrirlesturinn og svo hittumst við Halldóra til að kíkja á þetta hjá hvor annari. Svo þegar ég kom heim um kvöldið heyrði ég eitthvað hljóð inni í herbergi og undraði mig nú á því þar sem ég var nokkuð viss um að hafa slökkt á imbanum áður en ég fór til Halldóru, í því heyrðist kallað inn úr herbergi: Loksins kemuru heim manneskja! Var ekki nema elsku mammsa komin í óvænta heimsókn Ég var sko ekkert lítið ánægð að sjá hana! Það var sko algjört æði að hafa mömmu hjá mér seinustu dagana fyrir vörnina og á deginum sem mér er nú liggur við búið að kvíða fyrir síðan ég byrjaði í dýralækninum. En eftir vörnina hugguðum við mamma, Svala, Elsa og Ívar okkur bara heima í kotinu mínu og drukkum smá hvítvín og rauðvín og borðuðum súkkulaði og jarðarber til klukkan 21 um kvöldið, voða kósý. Svo skelltum við mammsa okkur út að borða og fórum svo aftur heim og horfðum á Shine (orðnar ansi þreyttar eftir daginn). Mamma fór svo aftur til Íslands snemma í gær og beint í afmæli til Ásdísar frænku - sem átti nú stórafmæli í gær, til hamingju með það elsku Ásdís mín
Annars er það að frétta að Fóulingurinn minn er flutt til Íslands og verður í einangrun í Hrísey til 3. júlí. Ég get sko ekki beðið eftir því að sækja hana Það gengur víst bara vel með hana - er auðvitað í beinu sambandi við Hvatastaði eins og góðri móður sæmir En ég fór með hana til Íslands þann 3. júní og það var nú frekar erfitt að kveðja krílið Og það er nú frekar skrítið að hafa hana ekki hérna heima, sakna hennar mikið!
En ég var sem sagt á Íslandi í tæpa viku. Var heima á Hellissandi í tvo daga og svo fórum við mamma, pabbi og Gils til Húsavíkur að hitta Leu systur og co og Magnús Darra. Það var voða gaman að hitta alla og voða notalegt að vera heima á Íslandinu í smá dekri.
Nú er bara vika eftir af skólanum (Retsmedicin) og svo er ég komin í SUMARFRÍ, jibbí kleina Flýg til Íslands þann 21. júní og byrja að vinna á Keldum þann 23. júní - langt sumarfrí eða þannig, hehehehe
Jæja læt þetta nægja í bili kæru hálsar, blessó!
»
25.05.2008 19:19:03 / sifsig
»
20.03.2008 12:56:51 / sifsig
Sælir kæru lesendur og gleðilega páska
Ég vil byrja á því að óska henni Telmu sætu til hamingju með 6 ára afmælið þann 13. mars og henni Halldóru með 26 ára afmælið þann 14. mars
Við Halldóra skelltum okkur til Berlín þann 14. mars og komum heim 18. mars. Það var rosa gaman hjá okkur - borðuðum góðan mat, löbbuðum heilan helling, skoðuðum fullt og fórum í bíó. Við komum til Berlínar um 14:30 og fórum strax út í göngutúr. Fórum og fengum okkur smá í svanginn á Alexander Platz, löbbuðum svo yfir Museumsinsel og um Unter den Linden. Svo um kvöldið fengum við okkur að borða á Lutter og Wegner, fengum okkur Sauerbraten nammi namm. Við byrjuðum alla dagana á svakalegu morgunverðahlaðborði á hótelinu okkar, vorum alltaf svo mettar eftir það að við þurftum varla að borða fyrr en um kvöldmatarleytið, nammi namm Á laugardaginn fórum við á Jüdisches Museum og vorum þar í ca. 6 tíma, ekkert smá lengi verið að fara í gegnum það en mjög gaman að hafa séð þetta safn, rosalegur arkitektúr! Eftir það fórum við að sjá Checkpoint Charlie og hluta af Berlínarmúrnum sem stendur enn. Svo fórum við og fengum okkur að borða (Currywurst) á veitingastað á Potsdamer Platz og fórum svo í bíó í Sony Center á Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street (sem er söngleikur! Vissi það ekki, kom á óvart en var bara sérdeilis ágæt). Sunnudeginum eyddum við á þremur mörkuðum og hoppuðum svo inn á kaffihús í Prenzlauer Berg kaldar og blautar eftir rigninguna. Þegar við vorum búnar að hlýja okkur aðeins yfir kaffibolla og köku löbbuðum við af stað í átt að hótelinu okkar en stoppuðum á leiðinni og fengum okkur að borða. Á mánudeginum fórum við í enn einn göngutúrinn, í þetta skiptið fram hjá Reichstag, í gegnum Tiergarten að Siegessäule og stoppuðum svo á kaffihúsi við hliðina á dýragarðinum. Svo héldum við áfram niður Kurfürstendamm fram hjá Kaiser-Wilhelm- Gedächtnis-Kirche, skoðuðum aðeins í nokkrum búðum (aðallega matarstell!) og enduðum svo daginn á veitingarstaðnum Bocca di Bacco. Þriðjudaginn notuðum við svo í Pergamonmuseum (með Pergamon Altar og Isthar Gate í aðalhlutverki) og Altes Museum (með brjóstlíkan Nefertiti í aðalhlutverki). Svo héldum við heim á leið um 14 bilið og komum um 23:30 á Hovedbanen. Takk æðislega fyrir skemmtilega ferð Halldóra Endilega kíkið á myndir frá Berlín.
Í gær skellti ég mér svo til Vordingborg til Ritvu og Steen til að sækja Fóulinginn minn. Þar fékk ég auðvitað kökur og kaffi og kvöldverð. Við fórum líka í göngutúr með hundana niður að sjó, voða hyggeligt. Svo þegar við vorum búin að borða kvöldmat vorum við Fóa keyrðar niður á lestarstöð þar sem við tókum lestina heim á leið. Ég tók nokkrar myndir af hundunum og Ritvu og Steen við sjóinn ef þið viljið kíkja á þær.
Nú sit ég bara hérna heima í góðu atlæti með páskaeggið mitt stóra og góða og allt nammið sem mamma og pabbi sendu mér, takk æðislega fyrir það elsku mammsa og pabbsi
Páskakveðjur Sif
»
24.02.2008 22:24:04 / sifsig
Sælt veri fólkið, það er svolítill sunnudagur í mér í dag, sem er kannski ekki skrítið þar sem það er nú sunnudagur! Ég er búin að vera voða löt og er ekki alveg að nenna morgundeginum. Það verður nú samt örugglega ágætt að mæta í skólann á morgun og hafa nóg fyrir stafni alla vikuna.
Við Halldóra erum alveg á fullu með specialið okkar og seinast liðinn föstudag kom fyrsti hundurinn inn til rannsóknar, voða gaman. Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá okkur undanfarnar vikur í að undirbúa þetta allt saman en ég held að þetta sé nú allt að smella saman hægt og bítandi. Meðal þess sem við erum búnar að vera að vesenast í er að leita að hundum fyrir verkefnið, hringja þá inn (sem tekur geðveikan tíma), gera alls konar excel skjöl og lista, skrifa á blóðglös og margt fleira í þeim dúr. Bumban á Halldóru vex með hverjum deginum og er bara orðin hin myndarlegasta kúla. Svo eru þau Svenni að fara að gifta sig í maí, allt að gerast á þeim bænum.
Í gær buðu Svala og Halldóra mér út að borða í tilefni af löngu liðnu afmæli mínu! Við fórum á fondue stað, voða kósý og mjög skemmtileg tilbreyting. Við sátum alveg heillengi fyrir framan pottinn að borða og spjalla og svo þegar við vorum búnar að sitja þar til lokunar þá skelltum við okkur yfir á Pilegården og héldum spjallinu áfram þar. Takk fyrir voða skemmtilegt kvöld og góðan mat stelpur mínar.
Nú er ég búin að sækja um innflutningsleyfi fyrir Fóulinginn minn. Eins og flestir vita er hún að fara að flytja til Íslands í sumar. Það er nú ekkert smá mikið sem þarf að huga að áður en maður flytur hund inn til landsins, frekar langur gátlisti, en þetta á vonandi allt eftir að ganga eins og smurt.
Annars var ég nú aldrei búin að segja frá vitna-ævintýrinu mínu! Ég var sem sagt fengin til að vitna í kortanúmera-máli (kortanúmerinu mínu var sem sagt stolið einhver tíman fyrir jól og sænska lögreglan náði mönnunum sem stálu því, ásamt fleiri kortanúmerum). Ég dró Halldóru með mér (mér til halds og trausts) til Lund þar sem að þetta fór allt saman fram og ég var látin vitna um morguninn um að það hafi verið stolið pening af kortinu mínu og svo framvegis. Það tók nú frekar stuttan tíma þannig að við höfðum allan daginn til að ganga um götur Lund og skoða okkur um. Þetta var nú bara hinn ágætasti dagur og er ég reynslunni ríkari.
Það er auglýsing hér í Danmörku (sem er búin að vera í gangi í dágóðan tíma) þar sem er hluti af alveg yndislegu lagi spilað undir og svo þegar ég var að horfa á lokaþáttinn af Six Feet Under (sem var ekkert smá góður þáttur!) fyrir löngu síðan þá kom þetta lag í lokin og ég er búin að vera að spá í því hver syngi eiginlega þetta lag og er búin að vera að hugsa um hvernig ég geti fundið út úr því. Þar sem ég er nú á góðri leið með að verða smá You Tube manneskja þá prófaði ég að leita að lokaþættinum af Six Feet Under svo ég gæti kannski komist til botns í þessu máli og viti menn nú er ég loksins búin að finna þetta... Söngkonan heitir Sia og lagið heitir Breath Me. Ég mæli með því að hlusta á þetta lag, það er alveg æðislega flott!
Jæja ég ætla að kveðja ykkur í bili ágætu lesendur, bæjó!
»
09.02.2008 17:17:40 / sifsig
Sælir kæru
lesendur, nú er ég loksins búin að
láta klippa á mér hárið stutt. Ohh hvað það er þægilegt,
allt annað líf!
Fyrir viku síðan
skellti ég mér á Mugison tónleika á Lille Vega og það var rosa
gaman, djö... snilli er þessi maður! Hann tók til dæmis þetta lag sem er
náttúrulega bara geðveik útgáfa af gömlu lagi.
Svo erum við
Halldóra byrjaðar á specialinu okkar (lokarannsóknarverkefni eða
eitthvað álíka). Titillinn á verkefninu okkar er: Motionstest som
mål for endothelfunktion hos hunde. Við erum sem sagt að fara
að rannsaka hvernig hreyfing hefur áhrif á starfsemi æðaveggjanna
og hvernig hjartveiki spilar inn í það, rosa spennandi! Við erum
búnar að vera alla vikuna í undirbúningsvinnu og byrjum svo í viku
9 að taka á móti hundum á fullu farti, gaman gaman.
Ég var aðeins að
leika mér á You Tube og rakst á eitt gamalt og gott Kiru lag sem ég
hreint út sagt elska og ákvað að deila því með ykkur. Það
heitir Losing You og
er yndislegt, endilega hlustið á það.
Er þetta ekki bara
orðið gott hjá mér, held það barasta! Bæjó.
»
27.01.2008 10:24:57 / sifsig
Halló kalló bimbó Long time no blogging! Það er nú búið að vera nóg að gera hjá mér eftir að ég kom aftur út til Köben. Er búin að vera á fullu á stórudýraspítalanum að lækna hesta og kýr, voða gaman Ég á eina viku eftir þar á skurðdeildinni, vona að ég fái að skera fullt!!! Svo þegar það er búið er ég að fara að gera speciale með Halldóru (það verður eitthvað ), soldið skræmmende finnst mér en það á pottþétt eftir að ganga glimrandi, við erum með svo yndislega vejledere Annars var jólafríið alveg hreint yndislegt að vanda, borðaði á mig gat hvern einasta dag og fór svo út að ganga með foreldrum mínum og Krumma eða út að leika með Telmu Lea, Jóhannes og börn voru sem sagt fyrir vestan þessi jólin þannig að öll fjölskyldan var saman komin á Helluhólnum sem var æðislegt. Það var spilað, horft á góðar bíómyndir, borðað surtlur (held nú að ég hafi staðið mig lang best í því eins og vanalega) og ýmislegt annað skemmtilegt baukað. Endilega kíkið á jólamyndir hjá Telmu og Bergsveini Kára. Annars er það að frétta að ég er á leiðinni á Mugison tónleika á næstu helgi, jibbí kleina Ég get varla beðið! Svo er ég loksins að fara að fá nýju tölvuna mína í næstu viku, hlakka ekkert smá til. Það er ömurlegt að vera tölvulaus, núna sit ég í tölvunni hans Íbba að blogga. Ég verð með afnot af tölvunni hans meðan þau Elsa eru að renna sér einhvers staðar í Frakklandi og í staðinn ætlum við Fóa að sjá um köttinn Albert á meðan. Ágætis samningur finnst mér Ef ykkur vantar skjáþvott kíkið þá við hér og skíturinn hverfur af skjánum á nó tæm Jæja ég læt þetta nægja í bili af bloggi, farvel alle sammen
»
28.12.2007 14:18:05 / sifsig
Gleðileg jól kæru lesendur og farsælt komandi ár Nenni ómögulega að blogga að svo stöddu en ég lofa að vera duglegri á nýja árinu sem er að koma (vonandi!). Julehilsner Sif.
»
09.11.2007 20:23:16 / sifsig
Hej alle sammen, ég að ég er búin að vera frekar ódugleg að blogga seinasta mánuðinn en ég hef nú góða afsökun! Jebbs ég er búin að vera í prófum og þetta er sko ekki búið að vera auðvelt hjá mér (vorkunn takk). Ég held barasta að þetta sé búinn að vera einn lengsti prófatími sem ég hef upplifað, en ætli manni finnist það svo sem ekki eftir hver einustu próf. Mér gekk bara þokkalega í þetta skiptið, búin að ná tveimur og fæ ekki út úr því þriðja fyrr en eftir nokkrar vikur, bara vonandi að maður nái því líka. Annars er bara FRÍ hjá mér næstu tvær vikur, LJÚFT Lea og Jóhannes koma til mín í næstu viku, get varla beðið. Við ætlum að fara eitthvað gott út að borða saman og svo á laugardaginn förum við á Muggisontónleika með Vigdísi og co, hlakka geysilega mikið til Vikuna eftir koma svo mamma og pabbi til mín í smá jólatúr. Við ætlum að skella okkur í jólatívolí og á julekabbaret, það verður pottþétt æði, var alla vega svaka gaman á seinasta ári þegar við mamma skelltum okkur saman Þetta verða sem sagt tvær algjörar hyggevikur hjá minni. Annars kynnti Vigdís mig fyrir nýrri hljómsveit um daginn - The Arcade Fire, algjörir snillingar, mæli sko með þeim Það er alltaf svo gaman að uppgötva nýjar hljómsveitir. Hér eru þrír tenglar þar sem þið getið hlustað aðeins á þá ef þið hafið áhuga: http://youtube.com/watch?v=Iz-WDk7Tbsc http://youtube.com/watch?v=eqGiCXtvokM http://youtube.com/watch?v=DEKC5pyOKFU Núna sit ég bara hérna heima í mestu makindum með kveikt á fullt af kertaljósum að hlusta á The Arcade Fire og að sötra hvítvín, voða kósý Það er svo gott að vera loksins búin með prófin og getað aðeins slappað af. Jæja ég bið að heilsa ykkur í bili með knúsi og kossum, kveðja Sif í orlofi
»
08.10.2007 17:07:19 / sifsig
Jæja þá er ég búin að setja inn nokkrar myndir frá Holstebro, endilega kíkið á þær. Bless í bili.
»
29.09.2007 13:31:36 / sifsig
Sælt veri fólkið. Þá er ég loksins búin að setja inn nokkrar nýjar myndir. Ég er búin að gera þrjú ný albúm (Griffontræf 2007, Hyttetúr 2007 og Ágúst og September ´07), endilega kíkið á myndirnar ef þið viljið Á seinustu helgi fórum við íslensku dýralæknapíurnar plús nokkrir makar í hyttetúr (hálfgerð útilega nema það er gist í litlum sætum kofum). Fóa rófa og Tilde pæja fengu auðvitað að fylgja með (var að passa Tilde í viku fyrir Ritvu og Steen). Það var nú líka farið í svona ferðalag seinasta haust en þá var nú engin gríðarleg þátttaka, aðeins ég, Svala, Halldóra og Kata. En í ár lögðum við (ég, Svala, Halldóra, Elsa, Sveina, Embla og Eiríkur) í hann seinnipart föstudags og vorum komin á Hilleröd Camping rétt fyrir kvöldmat. Það var nú byrjað á því að koma sér fyrir í kofunum fínu og svo var tekið upp áfengi og nammi svona rétt til að hita upp fyrir grillið. Þegar afgangurinn af fólkinu (Stína, Silja, Sara og Sveinbjörn) voru lögð af stað frá Köben var kveikt upp í grillinu og byrjað að grilla. Svo var borðað þegar allir voru komnir. Það var mikið talað, hlegið og hlustað á góða tónlist (Embla og Eiríkur komu með risa boomblaster á svæðið og allir voru í voða góðum gír. Varðhundarnir tveir stóðu sig með stakri prýði að verja björg og bú fyrir utanaðkomandi Það var vakið fram á rauða nótt og sötrað hvítvín, rauðvín eða bjór og nartað í smá sælgæti og snakk. Daginn eftir vöknuðu allir fyrir hádegi (og flestir um tíuleytið, ótrúlegt en satt), hresstu aðeins upp á útlitið og fengu sér morgunmat og kaffi (og sumir fengu sér smá bailyes út í kaffið, þeir taka það til sín sem eiga það!!!). Því næst fluttum við borð og stóla í sólina og fórum að spila trivial pursuit og auðvitað að borða smá meira sælgæti. Sumir voru ansi duglegir og fóru beint í bjórinn aftur en ég hélt mig nú bara við nammið Um fjögurleytið fórum við Embla, Eiríkur og varðhundarnir svo af stað heimleiðis á meðan afgangurinn af fólkinu varð eftir og sváfu aðra nótt. Það bættust víst nokkrir við í hópinn eftir að við vorum farin þannig að við skildum ekkert svo stórt tómarúm eftir okkur Þetta var voða skemmtilegt og held ég barasta að við endurtökum þetta aftur á næsta ári, er það ekki krakkar??? En eins og ég var búin að nefna var Tilde í pössun hjá okkur Fóu í tæpa viku á meðan Ritva og Steen fóru í ferðalag til Þýskalands. Það gekk bara rosa vel að passa og fannst þeim pæjunum voða gott að hafa hvora aðra til að kúra hjá og leika við. Á miðvikudaginn síðastliðinn var búið að plana keisaraskurð fyrir reproduktion-hópinn minn. Við erum fjórtán talsins í hópnum og voru aðeins fjórir sem áttu að fá að gera keisaraskurðinn á meðan hinir horfðu á. Ég var nú ekkert að búast við því að vera dregin og var nú hálfpartinn að vona að ég yrði það nú ekki. En viti menn ég var dregin og fékk sem sagt að taka þátt í þessu öllu saman og er ég alveg svakalega glöð með það þó það hafi verið smá scary svona fyrst til að byrja með. Þetta gekk alveg glimrandi vel hjá okkur fjórum þó að við höfum verið kannski svolítið lengi að þessu (sem er nú alveg eðlilegt við fyrsta keisaraskurð sem maður gerir á ævinni). En annars er margt spennandi búið að gerast í skólanum þetta haustið. Ég er búin að fara til Danish Crown sláturhússins í Holstebro einu sinni (og vera þar í fjóra daga) til að æfa mig í rektal- og gynækologisk undersögelse á beljum (rassa-og klobbaskoðun sem sagt), svo er ég búin að vera í alls konar sæðisrannsóknum og búin að sjá kennarann minn runka hundum og tappa af stóðhesti og svo er ég líka búin að gera smá gynækologisk undersögelse (klobbaskoðun) á hryssum. Það er sam sagt búið að vera hörku stuð í skólanum. Í næstu viku er ég að fara aftur til Holstebro, hlakka rosa mikið til því mér finnst þetta alveg svakalega skemmtilegt og spennandi. Fóa rófa verður auðvitað hjá Ritvu og Steen á meðan Jæja er þetta ekki komið nóg (ætla nú ekki að gera svona crazy langa færslu eins og síðast, ji dúdda mía ég hefði sko ekki nennt að lesa hana!), bæjó í bili
»
09.09.2007 17:16:23 / sifsig
Jábbs kæru lesendur þá er ég komin aftur til Danmörku. Það er nú orðið ansi langt síðan ég skrifaði seinast og er varla að nenna þessu blogg veseni lengur en ég ætla nú að reyna að skrifa eitthvað smotterí öðru hvoru (ekki búast við miklu). Það hefur margt drifið á daga mína síðan ég skrifaði seinast. Thailandsferðin var algjört æði og við Halldóra erum reynslunni ríkari. Seinustu vikuna mína í Thailandi ferðuðumst við aðeins um. Við byrjuðum á Chiang Mai sem er borg í Norður-Thailandi, roslega falleg og skemmtileg borg. Þaðan fórum við í trekking túr upp í fjöllin sem var sko algjört ævintýri - fórum á fílabak, böðuðum okkur í fossum, sváfum í bambuskofum, runnum á hausinn í leðjunni (var soldið blautt þarna uppi í fjöllunum), smökkuðum rice whisky og prófuðum bananasígarettu, borðuðum ekta góðan thai mat, sungum fyrir fjallabúa og þeir sungu fyrir okkur og fórum í lokin í bambusrafting. Þetta var algjört æði og væri ég sko alveg til í að gera eitthvað þessu líkt aftur þó að þetta hafi verið pínu erfitt og maður hafi verið blautur allan tíman, ég meina who cares þegar maður er að upplifa svona ævintýri Þegar við vorum búnar í trekking túrnum vorum við einn dag í Chiang Mai og skelltum okkur á one day cooking course (ó já Sif Sigurðardóttir fór á matreiðslu námskeið, hver hefði trúað að það ætti eftir að gerast) sem var bara mun skemmtilegra en ég hefði nokkuð tíman haldið. Svo héldum við til baka til Bangkok. Þar stoppuðum við nú stutt en náðum samt að klára að gera það sem við ætluðum, sem var að fara í ekta Thai nudd í Wat Pho (þar er einn virtasti nuddskólinn í Thailandi staðsettur) og auðvitað að skoða Wat'ið og hinn fræga Reclining Buddha. Því næst var ferðinni haldið til Kanchanaburi í Vestur-Thailandi. Þar fórum við að sjá Bridge on the River Kwai og allt sem henni tilheyrir (war cemetery og war museum...). Svo skelltum við okkur í eitthvað Wat sem ég man ekki hvað heitir þar sem maður fór ofan í helli með fullt af alls konar líkneskum og leðurblökum, jábbs við Halldóra vorum nú frekar smeykar við þær þar sem þær voru alltaf eitthvað flögrandi um í kringum okkur en við komumst nú heilar á höldnu út sem betur fer, þetta var nú frekar fyndið samt - vorum alltaf að beygja okkur niður og garga, sem betur fer vorum við einar þarna inni næstum allan tíman!!! Eftir Kanchanaburi fór ég svo af stað í ferðalagið endalausa til Íslands en Halldóra varð eftir til að leika sér við tígrisdýrin í Tiger Temple. Þegar ég komst loksins heim til Íslands eftir ansi langt ferðalag með millilendingu í Búdapest og stutti stoppi í Köben var ég nú orðin ansi þreytt á að sitja í flugvél og má með sanni segja að ég hafi þjáðst af slæmri flugþreytu (jet-lag) í að minnsta kosti tvær vikur eftir á Það var brunað með mig beint til Hellissands þar sem ég var í tæpa tvo daga og svo hélt öll fjölskyldan af stað í veiðitúr. Það var voða gaman í veiðitúr en ég stóð nú minnst í ánni þar sem ég þurfti að mæta til vinnu tvo af þremur dögum, en það var svo sem í lagi þar sem ég komst að því að laxveiði er ekki beint sportið fyrir mig, hef sko ekki þolinmæði að bíða eftir því að einhver leiðindar fiskur bíti á, ó nei langt í frá. En ég veiddi nú samt sem áður þrjár bleikjur sem var bara feikinóg. Ég var sem sagt að vinna á Keldum restina af sumrinu og var aftur á Bólunni, ekkert voða gaman þar sem það var ekkert að gera þar frekar en seinasta sumar. Skemmtilegustu dagarnir voru mánudagar (ég veit að þetta hljómar rosalega rangt en þetta er sko dagsatt) þegar ég fékk að fara út í hest-og fjárhús og taka blóð. Ég var yfir blóðtökunum í sumar (eða yfir og ekki yfir, það er alltaf bara einn í þeim), jebbs ég er sko farin að taka aðeins meiri ábyrgð eftir því sem líður á námið. Þetta gekk bara ágætlega hjá mér og er ég bara stolt af sjálfri mér fyrir að hafa skellt mér út í þetta af fullum krafti. Seinustu vikuna mína á Kledum fékk ég svo að eyða úti í músa-og rottuhúsi þar sem ég var að hugsa um dýrin og þannig, það var ágætis tilbreyting frá því að gera ekki neitt uppi á Bólunni, dagarnir liðu alveg ótrúlega hratt og það var sko nóg að gera. Í sumar létu Lea sæta systir mín og Dr. Jóhannes loksins pússa sig saman. Vígslan fór fram þann 18. ágúst í Háteigskirkju. Þetta var yndislegur dagur í alla staði, athöfnin var rosalega falleg og áttu sumir (lesist Sif Sigurðardóttir) frekar erfitt að halda aftur tárunum á tímabili. Eftir kirkjuna var svo svakaleg veisla í safnaðarheimili kirkjunnar. Þar var boðið upp á fiskiréttahlaðborð í forrétt, lambakjöt og kalkún í aðalrétt og auðvitað brúðarköku í eftirrétt. Það voru haldnar nokkrar ræður fyrir brúðhjónin og meðal annars vorum við frænkurnar (ég, Gerður, Birna og Sara) með smá ræðu um hana Leu okkar. Við vorum með smá myndasýningu samferða ræðunni og eftir hana spiluðum við Say a Little Prayer for You úr My Best Friends Wedding og fengum Leu til að koma upp til okkar á meðan lagið spilaðist og tókum nokkur frænku knús og grétum í kór. Atriðið okkar heppnaðist bara nokkuð vel þó ég segi sjálf frá. Eftir ræðustund og nokkra skemmtilega leiki kom svo dj Júlli og hélt uppi stuðinu fram á nótt. Ég dansaði sko af mér skóna eins og svo oft áður, ekkert smá skemmtilegur dagur Hjartanlega til hamingju með hjónavígsluna elsku Lea og Jóhannes og takk fyrir æðisgengin dag Það var svo auðvitað haldið smá frænkuhitting áður en ég fór aftur til Köben. Það er sko alltaf stuð á frænkukvöldum. Þetta skiptið var það haldið heima hjá Leu nýgiftu og samkvæmt hefðinni var borðað á sig gat og talað frá sér allt vit. Ég náði að fara þrisvar heim á Hellissand í sumar, ótrúlegt en satt. Fyrst fór ég heim þegar ég var bara nýlent á Fróni eins og fram kom á áðan. Svo fór ég heim á verslunarmannahelginni og átti að vanda góða daga heima hjá mömmsu og pabba. Svo skelltum við Lea og krakkarnir okkur vestur helgina áður en ég fór út. Það er alltaf svo gott að vera heima á Hellissandi Það var voða gaman að sjá Fóulinginn minn aftur. Hún var nú hætt að sjá út um augun fyrir augnbrúnum þannig að fyrsta verkefni mitt var að reita aðeins frá augunum hennar. Helgina eftir að ég kom aftur heim til Fóu fórum við á Griffon træf (griffonhunda hitting) í Vordingborg þar sem sumarhúsið þeirra Ritvu og Steen er staðsett. Þar var voða skemmtilegur dagur, góður matur og gott veður og smá rauðvín Í vikunni sem var að líða var ég í Reproduktionsæfingum í Holstebro á sláturhúsi þar. Þetta var algjört ævintýri og rosalega skemmtilegt en samt frekar erfitt. Við vorum alls 14 hressar píur sem vorum þarna saman komnar. Við þurftum sem sagt að fanga kýrnar og binda þær sjálfar (með frekar mikilli aðstoð frá kennaranum) og svo var bara að skella sér í axlarlangan handskann, setja slatta af rektalgeli á og dýfa hendinni á kaf í næsta beljurass! Þetta eru sem sagt æfingar í að finna út úr því hvort kýrnar séu þungaðar eður ei og felst í því að þukla á leghálsinum, leginu og eggjastokkunum í gengum endaþarminn. Við fengum líka að æfa okkur í að gera gynakologiska skoðun (eða píkuskoðun eins og það heitir á góðri íslensku). Við lentum líka í smá ævintýri á meðna við vorum þarna. Seinasta daginn okkar þarna kom kýr á sláturhúsið sem var talin vera með gin-og klaufaveiki þannig að öllu sláturhúsinu var lokað og enginn mátti fara út þannig að við vorum fastar þarna í nokkra auka klukkutíma á meðan verið var að gera rannsóknir og aðrar ráðstafanir til að koma í veg fyrir mögulegar smitleiðir frá sláturhúsinu. Við vorum látnar fara í sturtu þarna og var engn okkar með handklæði þannig að við þurftum að þurrka mestu bleytuna af okkur með pappírsþurrkum. Svo var okkur skipað að skilja öll fötin okkar eftir nema við fengum að halda nærfötunum okkar, sem betur fer, og svo var okkur úthlutað þunnum hvítum alveg gengsæjum samfestingum sem við áttum að fara í heim til þess staðar sem við gistum á. En sem betur fer var Vigdís nú ekki aldeilis sátt við þennan klæðnað (þar sem meirihluti starfsmanna sláturhússins eru karlkyns) þannig að hún fékk leyfi fyrir okkur allar til að fá lánaða sloppa yfir samfestingana svo að við yrðum nú ekki svo gott sem berrassaðar á vappi fyrir utan sláturhúsið og á leiðinni heim í rútunni. Ji þetta var nú alveg frekar fyndin lífsreynsla En við fengum að sjá beljuhausinn með öllum blöðrunum, ekkert smá spennandi! En það kom í ljós seinna um kvöldið að þetta var ekki gin-og klaufaveiki sem betur fer. Á föstudaginn skellti ég mér svo á rusfest með Elsu og Sveinu. Það var svaka stuð og við dönsuðum eins og brjálæðingar allt kvöldið og langt fram á nótt. Greyið Elsa var farin að kvarta yfir því að hún væri nú orðin frekar þreytt og ég skildi ekkert í henni því klukkan væri nú einungis TVÖ þannig að ég píndi hana til að vera áfram. Svo næst þegar hún fór að kvarta undan þreytu löngu seinna leit ég aftur á úrið mitt og sagði henni að klukkan væri nú bara TVÖ sem hún vildi nú ekki alveg samþykkja, hún vildi sko meina að klukkan væri nú orðin hálffjögur!!! Þá hafði ég náð að brjóta úrið mit einhvern veginn (ég skil ekki alveg hvernig það er hægt) og það var bara stopp, þannig að nú er úrið mitt ónýtt og ég bara neyðist til að fara í vikunni að kaupa mér nýtt úr því ég er ein af þeim sem get ekki lifað án þess að hafa úr Fyndið hvað maður getur treyst úrinu sínu algjörlega, ég var sko ekki að fatta að það væri stopp. Jæja ég held að ég sé nú búnin að standa mig ágætlega í þetta skiptið. Bið að heilsa í bili, hej hej
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|