Halló kalló bimbó
Long time no blogging!
Það er nú búið að vera nóg að gera hjá mér eftir að ég kom aftur út til Köben. Er búin að vera á fullu á stórudýraspítalanum að lækna hesta og kýr, voða gaman
Ég á eina viku eftir þar á skurðdeildinni, vona að ég fái að skera fullt!!! Svo þegar það er búið er ég að fara að gera speciale með Halldóru (það verður eitthvað ), soldið skræmmende finnst mér en það á pottþétt eftir að ganga glimrandi, við erum með svo yndislega vejledere
Annars var jólafríið alveg hreint yndislegt að vanda, borðaði á mig gat hvern einasta dag og fór svo út að ganga með foreldrum mínum og Krumma eða út að leika með Telmu
Lea, Jóhannes og börn voru sem sagt fyrir vestan þessi jólin þannig að öll fjölskyldan var saman komin á Helluhólnum sem var æðislegt. Það var spilað, horft á góðar bíómyndir, borðað surtlur (held nú að ég hafi staðið mig lang best í því eins og vanalega) og ýmislegt annað skemmtilegt baukað. Endilega kíkið á jólamyndir hjá Telmu og Bergsveini Kára.
Annars er það að frétta að ég er á leiðinni á Mugison tónleika á næstu helgi, jibbí kleina
Ég get varla beðið! Svo er ég loksins að fara að fá nýju tölvuna mína í næstu viku, hlakka ekkert smá til. Það er ömurlegt að vera tölvulaus, núna sit ég í tölvunni hans Íbba að blogga. Ég verð með afnot af tölvunni hans meðan þau Elsa eru að renna sér einhvers staðar í Frakklandi og í staðinn ætlum við Fóa að sjá um köttinn Albert á meðan. Ágætis samningur finnst mér
Ef ykkur vantar skjáþvott kíkið þá við hér og skíturinn hverfur af skjánum á nó tæm
Jæja ég læt þetta nægja í bili af bloggi, farvel alle sammen