Sælir kæru lesendur og gleðilega páska
Ég vil byrja á því að óska henni Telmu sætu til hamingju með 6 ára afmælið þann 13. mars og henni Halldóru með 26 ára afmælið þann 14. mars
Við Halldóra skelltum okkur til Berlín þann 14. mars og komum heim 18. mars. Það var rosa gaman hjá okkur - borðuðum góðan mat, löbbuðum heilan helling, skoðuðum fullt og fórum í bíó. Við komum til Berlínar um 14:30 og fórum strax út í göngutúr. Fórum og fengum okkur smá í svanginn á Alexander Platz, löbbuðum svo yfir Museumsinsel og um Unter den Linden. Svo um kvöldið fengum við okkur að borða á Lutter og Wegner, fengum okkur Sauerbraten nammi namm.
Við byrjuðum alla dagana á svakalegu morgunverðahlaðborði á hótelinu okkar, vorum alltaf svo mettar eftir það að við þurftum varla að borða fyrr en um kvöldmatarleytið, nammi namm
Á laugardaginn fórum við á Jüdisches Museum og vorum þar í ca. 6 tíma, ekkert smá lengi verið að fara í gegnum það en mjög gaman að hafa séð þetta safn, rosalegur arkitektúr! Eftir það fórum við að sjá Checkpoint Charlie og hluta af Berlínarmúrnum sem stendur enn. Svo fórum við og fengum okkur að borða (Currywurst) á veitingastað á Potsdamer Platz og fórum svo í bíó í Sony Center á Sweeney Todd: The Demon Barber of Fleet Street (sem er söngleikur! Vissi það ekki, kom á óvart en var bara sérdeilis ágæt).
Sunnudeginum eyddum við á þremur mörkuðum og hoppuðum svo inn á kaffihús í Prenzlauer Berg kaldar og blautar eftir rigninguna. Þegar við vorum búnar að hlýja okkur aðeins yfir kaffibolla og köku löbbuðum við af stað í átt að hótelinu okkar en stoppuðum á leiðinni og fengum okkur að borða.
Á mánudeginum fórum við í enn einn göngutúrinn, í þetta skiptið fram hjá Reichstag, í gegnum Tiergarten að Siegessäule og stoppuðum svo á kaffihúsi við hliðina á dýragarðinum. Svo héldum við áfram niður Kurfürstendamm fram hjá Kaiser-Wilhelm- Gedächtnis-Kirche, skoðuðum aðeins í nokkrum búðum (aðallega matarstell!) og enduðum svo daginn á veitingarstaðnum Bocca di Bacco.
Þriðjudaginn notuðum við svo í Pergamonmuseum (með Pergamon Altar og Isthar Gate í aðalhlutverki) og Altes Museum (með brjóstlíkan Nefertiti í aðalhlutverki). Svo héldum við heim á leið um 14 bilið og komum um 23:30 á Hovedbanen. Takk æðislega fyrir skemmtilega ferð Halldóra
Endilega kíkið á myndir frá Berlín.
Í gær skellti ég mér svo til Vordingborg til Ritvu og Steen til að sækja Fóulinginn minn. Þar fékk ég auðvitað kökur og kaffi og kvöldverð. Við fórum líka í göngutúr með hundana niður að sjó, voða hyggeligt. Svo þegar við vorum búin að borða kvöldmat vorum við Fóa keyrðar niður á lestarstöð þar sem við tókum lestina heim á leið. Ég tók nokkrar myndir af hundunum og Ritvu og Steen við sjóinn ef þið viljið kíkja á þær.
Nú sit ég bara hérna heima í góðu atlæti með páskaeggið mitt stóra og góða og allt nammið sem mamma og pabbi sendu mér, takk æðislega fyrir það elsku mammsa og pabbsi
Páskakveðjur Sif