Halló, seint skrifa sumir en skrifa þóÉg vil byrja á því að óska Gerði frænku og Auðunni hjartanlega til hamingju með litla snáðann Svo vil ég líka óska hjónunum Halldóru og Sveinbirni til hamingju með hjónavígslunaÉg er búin að setja inn örfáar myndir frá brúðkaupsdegi þeirra hjóna í albúm sem heitir Bryllup H&S. Svo er ég búin að setja nokkrar Fóu-myndir inn í Maí-albúm. Annars er bara mest lítið að frétta. Við Halldóra erum á fullu að skrifa lokaritgerðina og erum við loksins farnar að sjá fyrir endann á þessu blessaða speciale, hlökkum ekkert smá til að skila því þann 2. júní. Annars gengur nú svo sem ágætlega að skrifa, þetta er bara svo langur tími með sama efnið að við erum orðnar frekar leiðar á þessu. Ji hvað það verður gaman að vera búin að þessu. Fóulingurinn minn er að fara að flytja til Íslands. Við fljúgum til Íslands þann 3. júní og fer hún beint í einangrun í Hrísey, þ.e. ef hún fær að koma til landsins. Smá vesen á henni, hún þurfti auðvitað að greinast með Salmonellu kellingargreyið mitt. Hún er alveg einkennalaus og þess vegna var nú ekki búið að komast að þessu fyrr. Hún er búin að vera á sýklalyfjum í tíu daga núna og svo fer hún í lokaskoðunina á þriðjudaginn og þá fáum við úr því skorið hvort hún fái leyfi til innflutnings. Annars hafa allar aðrar prufur verið neikvæðar sem er frábært. Bara eitt hægt að segja um þennan blessaða innflutnings undirbúning - VESEN. Jæja ég læt þetta nægja í bili, bæjó
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.